váááá langt síðan síðast!!! úffff
Allavega þá er komin ágúst og sumarið því næstum því á enda!!!Fótboltinn búin að vera á fullu, en samt ekki ganga alveg nógu vel!!! Búið að vera fjör í vinnunni í sumar á Kópavogsvelli, ávallt gaman að vinna þarna :)..Búin að fara til Köben í sumar og skellti mér á Sigló um dagin með lillurnar sem ég er að þjálfa.. Þannig að ég get sagt að ég sé búin að gera og fara ýmislegt í sumar... sem er ekki slæmt! :)
Ákv. það í sumar að fara ekki aftur í skólann í haust, þannig að ég fékk mér vinnu bara í staðinn og er ég að vinna á leikskóla hérna upp í Salahverfi.. Þetta er mjög fínn leikskóli og krakkarnir alger krútt.. Fékk meira að segja bónorð frá einum strax fyrsta daginn, hehee.. algjör krútt!!! En þetta verður án efa bara gefandi og skemmtilegt sko ..
En jam ég veit ekki hvað ég get sagt meir nema bara gott að vera komin aftur :) vonandi fer e-r að skoða þessa síðu núna meira, hehe..
Anyways, þangað til síðar
síjú sætu ;*;*
p.s. eignaðist nýja góða vinkonu í sumar, hana Petru Lind Sigurðardóttur, markverju í Breiðablik :) án efa bjargaði sumrinu sem var þó mjög skemmtilegt:D Takk Petra mín ;*
Meistarar, meistarar, meistarar!!! :)
Loksins er komið að því .. Man.Utd eru Englandsmeistara 06-07 !!!
BESTA LIÐIÐ Í HEIMINUM!!! glory, glory man.utd... glory, glory man.utd.... !!En jæja ég þarf að læra!! Leyfi bara myndunum að njóta sín;)
þangað til næst
síjú sætu ;*;*
Glory, glory man.utd!!
Á sama tíma vorum við að spila við Breiðablik í deildarbikarnum... Ekkert merkilegt gerðist í fyrri hálfleik en síðan þegar 25mín eru eftir af leiknum þá skorum við en svo skora Blikarnir 3 mörk eftir mistök og einbeitingarleysi af okkar hálfu... Þannig að við klúðruðum því að komast í undanúrslit í fyrsta sinn í sögu Fylkis!! :( en það er alltaf næsta ár!
Núna fara bara prófin að byrja og allt á fullu í þeim málum.. Svo er stutt í mót og bíður mar bara spenntur eftir sumrinu :) Ég get ekki beðið!!
En jæja þarf að koma mér aftur að lærdómnum!! þangað til næst
síjú sætu;*;*
This is just summerlove!
Jæja krúttin mín hvað segiði þá? afsakið bloggleysið hérna upp á síðkastið, þetta gengur nöttla ekki lengur.. ! en ég lofa að ég fari að bæta mig í þessu núna !!!
Það hefur nú samt lítið gerst þessa vikuna.. Spiluðum við Keflavík á þriðjudaginn síðasta og það endaði með ósköpum, töpuðum 3-0!! Helv. andsk. djö.... Ekki alveg okkar leikur en við þurfum bara að taka á því í næsta leik!!!
Vikan er nú samt búin að vera voða róleg og fljót að líða.. Búin að vera bara í dúllinu, tjilla með fótboltastelpunum og hafa það næs... Ég og Magga erum bara einar heima.. Pabbi og Eyrún eru í Glasgow og mamma er að vinna.. Koma öll heim á morgun..
Það verður nú samt lítið gert núna um helgina þar sem ég á leik á morgun, sunnudag, kl 12 við Breiðablik!!
Fyrsti leikurinn minn gegn mínu gamla liði og ég get ekki sagt annað en að ég er pínu stressuð sko en samt er ég spennt að spila líka :) þetta verður bara gaman !! Audda verður spilað með því hugarfari að vinna og komast í undanúrslit, vonandi!! KR eða Keflavík VERÐA að vinna og við VERÐUM að vinna líka.. Kemur allt í ljós á morgun!! Biðum spennt :)
Heiða, María Björk, Óla, Anna og Hildur hennar Ólu komu til mín í mat í gær.. Var búin að elda fyrir þær og komum við beint eftir æfingu hingað heim og borðuðum og vorum að tjilla fram á kvöld.. Horfðum á The Notebook.. Óla hafði aldrei séð hana þannig að við ákv. að láta hana horfa á hana.. Þetta er bara besta mynd ever sko!!! Elska að horfa á hana, hún er svo sæt!! Love it! hehe ókei ég er hætt núna..
En jæja ég ætla að fara að gera e-ð af viti..
Minni bara á ,
vs.
á morgun kl 12 í Fagralundi!! Allir að mæta ;)
sjáumst á morgun!! síjú sætu ;*;*
ole ole ole ole ole :)
Svona vorum við eftir leik í gær og erum eflaust allar núna enn :) hehe.. Næsti leikur er á þriðjudag við Keflavík og svo á sunnudag við Breiðablik.. Með því að vinna þessa leiki eða bara annan þá getum við komist í undanúrslit í deildarbikarnum:) sem væri nöttla bara gegt... Helgin er að ganga í garð, og hún fer eiginlega mest öll í lærdóm og svefn.. Afmæli og grill reyndar líka.. Fínt að fá svona helgi þar sem lítið er að gerast og bara tjill :) en jæja ég ætla að hætta þessu núna, hafið það gott um helgina og gangiði hægt um gleðinnar dyr ef þið farið að skemmta ykkur:)
þangað til næst
síjú sætu;*;*
Glory, glory Man.Utd :)
maður getur bara vonað að þetta gerist aftur!! :) Besta kvöld lífs míns held ég bara, hehe..... en já þeir eru komnir í undanúrslit þannig að mar er bara sáttur og verður það núna næstu daga!!! :D:D
En já það er leikur hjá okkur á fimmtudaginn við KR á Fylkisvelli kl 19.. Allir að mæta og hvetja okkur:) ég hvet sérstaklega FÍBBLIN að mæta, hafa gott af því að kíkja út og anda að sér frísku lofti ;) hehe
en jæja háttatími !! góða nótt babýs ;) þangað til næst
síjú sætu ;*;*
Fótbolti er lífið!!!
Næstum liðin vika síðan mar kom heim frá Portugal.. Get sagt ykkur það að mar getur lifað endalaust á þessari ferð :) hehe.. Þetta er það eina sem talað er um núna á æfingum hehe.. Enda bara gaman og góðar minningar frá þessari ferð !! komnar myndir inn á www.fotki.com/ragna86 :) tékk it out!!

Góður hópur mar :).. við hressar og kátar eftir góðan sigurleik gegn Þór/KA 7-2 fyrir okkur , jeiiiii... hehe
Það er afmæli í kvöld hjá Birnu :) verður fjör, bara stelpur að hittast og spjalla, gerist ekki betra, hehe :) allavega finnst okkur það ekki.. Ætli mar kíki ekki síðan smá á bæjarrölt, kíkja á lýðinn í bænum :)
En jæja það er að koma matur þannig að ég ætla að láta þetta gott heita í kvöld.. Gangiði hægt um gleðinnar dyr ef þið farið út á lífið í kvöld :) skemmtið ykkur vel og við heyrumst
þangað til næst
síjú sætu ;*;*
I´m back :)
Jæja vikuför til Portúgals er lokið.. Sem vekur hjá manni blendnar tilfinningar, hehe.. Langaði að koma heim en það var bara svo gegt þarna úti að mig langaði líka heldur ekkert að koma heim.. Nú þarf mar alveg að bíða í ár eftir næstu ferð.. En það verður fljótt að líða vonandi .... En þessi ferð var bara geðveik frá upphafi til enda!! Frábærar stelpur sem voru þarna með mér úti, ferðin hefði sko ekki verið söm án þeirra!! Algjör æði..
en ég ætla nú bara að stikla á stóru hvað gerðist í ferðinni...
* Flogið var frá Keflavík á laugardaginn 24.mars til Faró í Portúgal.
*Ferðalagið tók hátt í 4 tíma og vorum við lent í Faró um kl 22 á Portúgölskum tíma.
*Þurftum að keyra í 45mín til Alfamar þar sem beið okkar matur og góðgæti áður en þreyttir ferðalangar fóru upp á herbergi að sofa..
*Sunnudagurinn byrjaði snemma eða kl 8(misstum samt klst. í svefn þar sem klukkan breyttist akkúrat á miðnætti þegar við komum til landsins.. )
*Farið var á æfingu á frjálsíþróttavellinum (sem tók smá tíma að finna) en fannst loksins.. Eftir æfingu var kíkt í hádegismat og svo út á sundlaugarbakka þar sem þar lágu frekar heitir norðmenn sem við áttum eftir að kynnast seinna í ferðinni :) hehe..
*Önnur æfing á sunnudeginum var aðeins erfiðari en mjög skemmtileg :)
*Mánudagurinn var bara alveg eins og sunnudagurinn, m.a. var líka rigning á mánudeginum þegar við vorum á æfingu..
*Eftir æfingar og mat þá var oftast setið niðri í lobbýi, horft á norsara og tjattað :)..
*Á þriðjudagskvöldið var síðan farið út að borða. Strákarnir og stelpurnar saman.. Fórum á voða fínan nýjan veitingastað í Albufeira.. Þar fór vígslan mín fram! Þar sem ég er ný i Fylki þá var ég vígð inn í liðið og það fór þannig fram að ég þurfti að standa upp fyrir framan alla og segja hvað ég væri ánægð með að strákarnir væru með okkur, þeir væru svo sætir og mér hefur alltaf fundist Fylkisstrákarnir svo ótrúlega fallegir og myndarlegir.. Og svo átti ég að taka einn leikmann fyrir, Mads, nýja danann og segja hvað hann væri kynþokkafullur og ég veit ekki hvað og hvað, hehe..En þetta var bara gaman og kvöldið skemmtilegt:)
*Við spiluðum svo leik við KR á miðvikudeginum, töpuðum honum líka ekki skrýtið þar sem pínu djamm var á liðinu daginn áður..
Allir hinir dagarinir voru nú bara svipaðir sem eftir voru..
*Föstudaginn þá fórum við að spila við Þór/KA og unnum 7-2 :)
*Um kvöldið þá fórum við nokkrar út að borða á pizzastað og fórum svo að hitta norsaranna á karókí bar rétt hjá..
*Ég og Óla áttum míkrafóninn um kvöldið, hehe.. Sungum fyrst oopps i did it again og svo fórum við upp með 2 norsurum og sungum no matter með Boyzone, hehe.. en þetta var gaman og bara kvöldið mjög skemmtilegt :)
*Laugardagurinn fór svo í það að sjá strákana spila við Nörkopping og svo fórum við heim...
En eins og ég sagði þá var þessi ferð bara algjör snilld og bara ótrúlega gaman :D get ekki beðið eftir næstu ferð..
En jæja mar verður að fara að gera e-ð að viti.. þangað til næst
síjú sætu ;*;*
Portugal here I come:D:D:D
Lovjú gæs;*;* hafið það gott!! ég læt kannski vita af mér ef ég kemst í netsamband þarna úti!! tótalí ;)
Kv. Ragna :)
3dagar í Portúgal :)

Svona verður sólin hjá mér og ég ætla soleis að grillast þarna úti, hehe..
Erum búnar að vera að skoða spánna og hún er svona sæmileg, búið að spá rigningu e-n dag þarna en ég hlusta ekki á soleis kjaftæði , verður bara sól þarna!!! Annas læt ég e-n borga mér 100þús kallinn tilbaka takk fyrir !!
En 3 days beibí, vúhú!!!
læt ykkur vita rétt áður en ég fer til að vera enn leiðinlegri, hehe ;)
En annað í fréttum er að það er að koma bandarískur leikmaður til okkar á reynslu í Fylki.. Hún lenti einmitt bara í morgun og svo spilum við æfingaleik við Stjörnuna annað kvöld .. Samt það fyndasta er að ef hún stendur sig ekki á morgun þá fer hún beint heim, hehe.. Einn leikur og gellan verður bara að standa sig... En það verður spennandi að sjá hvernig hún er...
En jæja ætla að hætta þessu bulli, fara að gera e-ð af viti.. !! þangað til næst
síjú sætu ;*;*

